Spurt er
Færsluflokkar
Eldri færslur
Maí 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Af mbl.is
Sitja með Bónuspoka og smyrja brauð.
11.7.2014 | 12:24
Finnst dásamlegt að sjá viðbrögð fólks við mismunandi verslun viðskiptavina og þá helst ferðamanna. Einn minntist á þetta með að útlendingar væru að smyrja sér brauð og notuðu til þess borðin sem hægt væri að setjast við. Fannst þetta svona hálfgerð gremja yfir því að fólkið væri ekki að versla það sem væri í boði á kaffi- og veitingahúsum götunnar. Það er eins og hann geri sér ekki grein fyrir að fólk almennt veður ekki í seðlum og finnst oft skemmtilegra að gera sitt eigið nesti í stað þess að setjast inn í góða veðrinu og kaupa rándýrt bakkelsi eða mat. Saddur og ánægður viðskiptavinur gefur sér tíma til að versla og skoða sig um. Stundum er eins og íslensk verslun geri sér ekki grein fyrir að til að ná í viðskiptavini verður maður að aðlaga sig að vilja þeirra.
Í fréttinni er viðtal við konu sem hefur aðlagað sig að vilja viðskiptavina og er hæstánægð með sumarverslunina. Nefnir einmitt að rigningin hafi jákvæð áhrif, því þá komi fólk inn úr rigningunni og gefi sér tíma til að versla. Þetta kallast að læra af reynslunni, læra á hvaða verð sé boðlegt, hvaða vörur séu eftirsóttar og hvað viðskitpavinurinn vill. Jákvæðin, eftirtekt og vilji til að lifa af.
Ég fer sjaldan niður laugaveg en geri það þó annað slagið, en sjaldan sem eitthvað vekur áhuga minn til að taka upp budduna því vöruframboð er nær eingöngu miðað við ferðamenn og verðið eftir því. Spurning að setjast niður og gera þetta að aðlaðandi götu sem gaman er að skoða og eftirsóknarvert að versla á, bæði fyrir innlenda og erlenda.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/07/10/sitja_med_bonuspoka_og_smyrja_braud/
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:02 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Mikið rétt Brynjólfur, og hver erum svið svo sem að hneykslast á hvað annað fólk gerir?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2014 kl. 12:52
Það er svo mikið að læra af þeim sem tekst að lokka til sín viðskiptavinina. Við getum ekki bara ætlast til að hingað komi bara fólk sem eltir kaffihúsin og veitingastaðina. Fólk er í sumarfríi og eins og alltaf er verið að hamra á þá er verðlag hér orðið hátt og jafnvel þó að það væri lágt þá finnst fólki gott að sitja úti með nesti. Lautarferð í borg.
Brynjólfur Tómasson, 11.7.2014 kl. 13:07
Nákvæmlega, það sem ég tek eftir á mínum ferðalögum og kann vel að meta, er viðmót heimamanna. Ef fólk er glaðlegt og innilegt þá er ég ekki ósátt við að greiða aðeins meira, en ef græðgin ein ræður og fólk verður fúlt yfir smáyfirsjónum þá er allt ómögulegt. Sem sagt viðmótið skiptir öllu máli.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2014 kl. 16:51
Við verðum að hætta að vera alltaf að velta okkur upp úr því hvað hver eyðir, finnst alltaf eins og það sé byrjað á öfugum enda. Hvað er frekar það sem mér tekst að selja, er ekki sölumennskan sú að geta selt eitthvað sem enginn þarf bara af því að það var svo gaman að versla af mér :) Þannig á það að vera að við fáum fólkið hingað aftur af því að það var svo gaman og eins og þú segir þá greiðir maður með glöðu geði aðeins meira.
Brynjólfur Tómasson, 11.7.2014 kl. 20:20
Má kannski minnast á það hér að í tvö ár rak ég tjaldstæðið hér í Varmalandi með konunni minni þó svo að við værum að vinna fyrir milliliði. Flestir útlendingarnir sem komu þangað voru að spyrja um verlsanir eins og Bónus í nágrenninu og voru mikið með mat sem það brallaði sjálft. Bæði fólk á rándýrum húsbýlum sem það hafi leigt og svo fólk á hjólum og bílum og margir á þessum sniðugu litlu bílum sem hægt er að sofa í. Flest allt þetta fólk var með sinn eigin mat og spurði aldrei um matsölustaði í nágrenningu.
Brynjólfur Tómasson, 11.7.2014 kl. 21:47
Málið er að sumt fólk, sérstaklega þjóðverjar eru frekar samansaumaðir með að eyða ekki of miklu á ferðalögum. Erfitt við að eiga reyndar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2014 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.